17.04.2011 08:58
Hrafnar fullbókaður í sumar

Hrafnari er vel tekið af hrossaræktendum. Hann er fullbókaður í sumar, líkt og í fyrrasumar og kominn biðlisti fyrir húsnotkun í Austurási og gangmálið á Hömrum í sumar. Hérna sést hann ásamt 9,5 töltaranum Sunnu-Rós frá Úlfljótsvatni sem var hjá honum sl. sumar.
Þess má geta að folaldið sem sést hér með Sunnu-Rós heitir Hansa frá Laugavöllum og er undan stóra bróður Hrafnars, Hákoni.
