13.05.2011 18:24

Fyrsta folaldið undan Hrafnari komið í heiminn




Fyrsta afkvæmið undan Hrafnari er komið í heiminn. En það voru vinir okkar á Eylandi, Rut og Davíð, sem héldu einni bestu hryssu sinni undir Hrafnar á vordögum í fyrra. Hnáta frá Hábæ heitir hún, undan Flögra frá Hábæ, Sveins-Hervarssyni. 

Uppskeran varð gullfallegt brúnt hestfolald sem hefur fengið nafnið Hrafn frá Eylandi. Sjá nánar á www.eyland.is
Flettingar í dag: 53
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 52659
Samtals gestir: 18138
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 23:51:05