15.05.2011 12:06
Von á föngulegum hópi undan Hrafnari í sumar
Þessi kappi komin í heiminn í gær 14. maí, undan Hrafnari og Hróðnýju frá Ragnheiðarstöðum.
Það er óneitanlega spennandi sumar framundan hjá okkur hrossaræktendum. Kynbótasýningar eru hafnar, Landsmót er á næsta leiti og HM síðar í sumar. Við förum að huga að því hvaða stóðhesta á að nota á hryssurnar, hvort veðja eigi kannski á einhvern ósýndan, einhverja vonarstjörnu. Tilhlökkunin yfir því að fá folöldin er þó hvað sterkust hjá mörgum. Undan Hrafnari er von á föngulegum hópi folalda í sumar því undir hann í fyrra fóru miklar dívur, þ.á.m:
Selma frá Sauðárkróki 1. verðl 8,10
Hnáta frá Hábæ 1. verðl 8,18
Snælda frá Bjarnanesi 1. verðl 8,24
Filma frá Árbæ 1. verðl 8,22
Birta frá Skarði 1. verðl 8,06
Stilla frá Ingólfshvoli 1.verðl 8,01
Keila frá Bjarnastöðum 1. verðl 8,34
Elding frá Strönd 1. verðl 8,19
Aða frá Brautarholti 1. verðl 8,16
Sunna-Rós frá Úlfljótsvatni 1. verðl 8,33
Flaga frá Hafsteinsstöðum 1. verðl 8,00