04.06.2010 21:51
Hryssur í hólfið 12. júní

Óskað er eftir að þeir sem eiga pláss í hólfið hjá Hrafnari komi með hryssur á Hamra í Grímsnesi laugardaginn12. júní nk. á milli kl. 15:00 og 18:00. Ef einhver getur ómögulega komið á þessum tíma má hafa samband við Sigurð á Hömrum í síma 849-4972 og semja um aðra tímasetningu.
Við afhendingu hryssnanna þarf að láta Sigurð vita um eftirfarandi:
Eigandi/umráðamaður hryssu,
Símanúmer,
Uppl. um hryssu
Nafn og uppruni
Fæðingarnúmer
Einstaklingsmerki
Uppl. um folald
Nafn og uppruni
Litur
Faðir
Einstaklingsmerki
Góð regla er að búið sé að einstaklingsmerkja folöld og gefa hryssunum inn ormalyf auk þess að klippa hófa ef þess er þörf. Hryssur sem koma í girðingu hjá hestinum verða alfarið á ábyrgð umráðamanna þeirra á meðan þær eru í girðingunni. Daglegt eftirlit verður með girðingunni en umráðamönnum hryssu er ekki heimilt að fara um girðinguna á tímabilinu án samráðs við Sigurð.
Stefnt er að því að sónarskoða að um 6 viknum liðnum eða um mánaðamót júlí/ágúst.
Nánari upplýsingar hjá Hannesi í síma 864-1315 eða með tölvupósti á hrafnar@hrafnar.is
Skrifað af Hannesi