07.06.2010 19:48
Húsmálið að klárast

Þá fer húsmálið senn að klárast. Miklar drottningar hafa vitjað Hrafnars í vor, má þar nefna Hnátu frá Hábæ og Bríeti frá Skeiðháholti, 1. verðlauna klárhryssur, skreyttar níum á alla kanta, auk 1. verðlauna Náttfaradótturinnar Birtu frá Skarði, verðmætt að eiga slíka hryssu í ræktun.
Í hólfinu að Hömrum koma svo til hans ekki síðri hryssur, þar á meðal dívurnar Filma frá Árbæ, Kórína frá Tjarnarlandi, Elja frá Ingólfshvoli og Sunna-Rós frá Úlfljótsvatni.
Skrifað af Hannesi