10.07.2010 11:15

Hrafnar hefur það gott á Hömrum




Hrafnar hefur það gott að Hömrum í Grímsnesi þar sem hann eyðir sumrinu með sínum hryssuhópi. Hann er rólegur í stóðinu, heldur hópnum sínum saman en er ekkert að stressa sig á hlutunum þó. Hann hefur heldur fitnað í sumar, var frekar grannur þegar honum var sleppt út í vor.

Við bættum við hryssu undir hann um daginn, 1. verðlauna hryssunni Selmu frá Sauðárkróki. Selma er bleikálótt og sést hér ganga á undan Hrafnari, á eftir koma svo rauðskjótt og rauð hryssa með folöldum. Selma kastaði bleikstjörnóttri hryssu undan Hákoni Álfssyni, okkur fannst hún svo flott að það lá beint við að fara með hana í litla bróður.

Flettingar í dag: 35
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 71
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 51437
Samtals gestir: 17729
Tölur uppfærðar: 4.2.2012 17:32:49