Saga Hrafnars

Hrafnar frá Ragnheiðarstöðum IS2008182575 er tveggja vetra brúnstjörnóttur foli. Móðir hans er Hátíð frá Úlfsstöðum og faðir Orri frá Þúfu. Hátíð þekkja margir frá LM2006 þar sem hún fór í annað sinn í 10,0 fyrir tölt aðeins 5 vetra gömul. Heiðursverðlaunahestinn Orra frá Þúfu þarf ekki að kynna, án efa farsælasti kynbótahestur ræktunarsögunnar á Íslandi.
 
Hrafnar er ræktaður og í eigu Hannesar Sigurjónssonar, Ingu C. Campos og Helga Jóns Harðarsonar. Hannes og Inga kenna sína ræktun við Hamarsey (www.hamarsey.is) og Helgi Jón við Ragnheiðarstaði (www.ragnheidarstadir.is), báðar eru þessar jarðir í Flóahreppi og liggja nánast að hvorri annarri.
 


Eins og venja er með folöld gekk hann undir móður sinni til um það bil 6 mánaða aldurs en fór þá inn í fóstur hjá Jens Petersen á Sæfelli við Stokkseyri og dvaldi þar folaldsveturinn. Vorið 2009 kom hann aðeins við í hesthúsinu í Hafnafirði og var gerður bandvanur ásamt nokkrum öðrum folöldum. Eftir það hefur hann verið í stóðhestahólfi að Ragnheiðarstöðum. Nú í lok apríl 2010 var hann tekinn inn í hesthús til Hannesar og Ingu í Hafnarfirði, rakaður, járnaður að framan og byrjað að undirbúa húsmál.
 
Þann 13. maí kom fyrsta hryssan til hans og má sjá myndir af því í myndaalbúmi hér á síðunni. Stefnan er að halda undir hann um 20 úrvals hryssum árið 2010.

 

Ef lýsa ætti Hrafnari í nokkrum orðum þá má segja að hans aðall sé gott og yfirvegað geðslag auk mýktar í skrokk og hreyfingum.

Hann er snillingur í umgengni, fljótur að læra og vinalegur. Hann fer mikið á tölti og skeiði en nú eftir að hann var járnaður að framan velur hann brokkið mest. Hreyfingarnar eru mjúkar og fjaðrandi og fótaburðurinn hár.


                                         






Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 89
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 61011
Samtals gestir: 20468
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 02:27:09